Í dag fór fram stærsta strandakeppni í þolakstri sem fer fram ár hvert á ströndum Frakklands. Til leiks voru skráðir rúmlega ellefuhundruð keppendur (1100) og þar af margir af frægustu enduroköppum Frakklands ásamt nokkrum af frambærilegustu ökumönnum í motocrossi eins og Tanel Leok og Nicolas Aubin. Motocross ökumenn hafa í auknu mæli farið að taka þátt í þessari keppni og vann Steve Ramon hana á síðasta ári. Aðstæður voru með þær allar erfiðustu sem skipuleggjendur keppninnar hafa nokkurn tímann upplifað en vetur konungur hefur heldur betur hafið innreið sína í Evrópu og snjóaði t.d. í fyrsta sinn í Róm í tæp þrjátíu ár og var Frakkland ekki undanskilið af því. Var um 12-15 cm metra snjór yfir brautinni þennan morgun og var mikil ráðstefna um það hvort það ætti að halda keppnina en að lokum tóku skipuleggjendur ákvörðun um að láta keppnina fara fram þrátt fyrir kuldann og að brautin yrði að öllum líkindum harðari en keppendur ættu að venjast. Hægt var að fylgjast með keppnina á netinu og var hreint út sagt magnað að sjá ræsinguna þegar um ellefuhundruð keppendur lögðu af stað í einu eftir fjörunni og fljólega var ljóst að um helmingur keppenda hafði ekkert í þetta að gera eins og venjulega og voru þeir hreinlega fyrir. En það er hluti af skemmtanagildi keppninnar og er ótrúlegt að sjá þá sem eru í toppbaráttunni þræða í gegnum aðra keppendur sem sitja pikkfastir í sandinum.
Sigurvegari keppninnar var enginn annar en Jean-Claude Mousse sem er fertugur fransmaður og sigraði síðast árið 1999. Jean-Claude Mousse keppti að þessu sinni á Yamaha YZ450F hjólinu og var hann í harðri baráttu við motocross ökumennina Nicolas Aubin og Tanel Leok en hafði betur þrátt fyrir að hafa verið keyrður niður einu sinni, dottið einu sinni hressilega og fengið Nicolas Aubin ofan á sig í þokkabót. En Jean-Claude Mousse hafði betur á Yammanum og að vonum mjög sáttur við sigurinn. Nicolas Aubin varð í öðru sæti og Tanel Leok varð í þriðja sæti og greinilegt að motocross ökumenn eru farnir að setja æ meira mark sitt á þessa keppni.
