Ken Roczen varð fyrir því óláni að handleggsbrotna rétt fyrir AMA Supercross tímabilið og varð hann því að færa sig úr West Lites yfir í East Lites sem hefur keppni í Atlanta að mig minnir. Í gær hjólaði hann í fyrsta sinn eftir brotið og er ekki annað að sjá en að hann sé bara alveg "þokkalegur", eins og sést hér fyrir neðan, og hann verði tilbúinn í slaginn í East Lites deildina þegar hún byrjar. Verður gaman að sjá hann keppa á móti "BamBam" eða Justin Barcia sem er núverandi meistari en Dean Wilson sem var helsti keppinautur Justin Barcia er núna í West Lites hlutanum. Justin Barcia er óhræddur við að láta aðra ökumenn finna fyrir sér, oft af óþörfu, og spurningin er hvernig munu þeir tveir koma til með að berjst, þ.e. Ken Roczen og Justin Barcia. Mig grunar að Justin Barcia eigi eftir að gera tilraun til að taka þýska undrabarnið niður við fyrsta tækifæri, svona til þess að sýna honum hver sé húsbóndinn á heimilinu.