Hér er hægt að sjá "front flip-ið" hjá Heat Frisby í "slow motion" og frá öðru sjónarhorni en sýnt hefur verið frá hingað til. Það sést vel að þetta er þokkalegt högg sem hann fær þegar hann lendir og hefði ekki mikið mátt út af bregði til að hann hefði einfaldlega farið af sleðanum við lendinguna. Fyrir neðan má svo sjá tilraun Justin Hoyer's til að gera tvöfalt bakflip og eins og sést að þá virðist það vera dæmt til þess að mistakast því hann virðist vera taugatrekktari en hreinn sveinn sem er að fara heim með stúlku í fyrsta sinn. Justin Hoyer's handleggsbrotnaði við atvikið eins og sést vel og var heppinn að slasast ekki meira. Fyrir neðan það er svo svaðalega krassið hjá Colten Moore og var pilturinn heppinn að standa upp ómeiddur frá þessu. Hann gerði sér svo lítið fyrir og sigraði í þessari keppni.