Monday, 30 January 2012 09:44

Fjórða umferð AMA Supercross Oakland - spennan eykst "UPPFÆRT"

Written by 

Fjórða umferðin í AMA Supercross fór fram í Oakland um helgina og var fyrir margar sakir sérstök.  Fyrir það fyrst að þá var hún sérstök þar sem James Stewart hafði ekki ennþá náð að landa sigri í mótaröðinni og hefur það þótt óhugsandi fyrir tímabilið að hann myndi vera að ströggla við að lenda á palli.  Að öðru leyti kom sú frétt illa við marga að mekkinn hans James Stewart skyldi hafa látist  þegar bifreið keyrði á hann þegar hann var að hjálpa konu sem var stopp út í vegarkannti vegna bensínleysi en sú sem keyrði á hann var í farsímanum að senda sms og missti stjórn á bílnum.  Já, akstur er dauðans alvara og að senda SMS á meðan verið er að keyra á engan vegin við.  Þar með lauk viðburðaríkri en stuttri ævi Mark "Tex" Adams og nokkuð ljóst að lið James Stewart og Davi Millsaps nokkuð laskað sökum skyndilegs fráfalls Mark.  Vonandi verður þessi viðburður til að vekja fólk upp með að þú þarft á fullri athygli að halda þegar þú keyrir og þú ert EKKI að senda SMS á meðan þú ert undir stýri...   

Ef þú ert ekki búinn að sjá keppnina og vilt sjá hana sjálfur, að þá getur þó sótt torrent af stóra flokknum hér og lites flokknum hér.  Hér fyrir neðan geturðu svo horft á keppnina áður en þú lest eitthvað meir en Lites flokkurinn var að koma á netið.

Lites flokkurinn:  Það gekki ekki allt sem skyldi upp hjá Pro Circuit Kawasaki liði Mitch Payton og í fyrsta sinn í langan tíma sá ég liði ströggla.  Brautin þótti nokkuð tæknileg og tjáði Eli Tomac sig um að þetta hefði verið ein tæknilegasta braut sem hann hefði hjólað í það sem af væri núverandi tímabili.  Í fyrri undanriðlinum að þá datt Tyle Rattray nokkuð illa og varð að hætta keppni.  Brákaði hann hryggjalið í hálsi og óvist með framhaldið á næstunni.  En Tyle Rattray, sem er liðsfélagið Dean Wilson, var með efstu mönnum í stigakeppninni.  Það var þó liðsfélagi hans Dean Wilson sem sigraði í fyrri undanriðlinum, Zach Osborne varð annar og Martin Davalos varð þriðji.  Í síðari riðlinum varð það Cole Seely sem sigraði eftir harða baráttu við Eli Tomac sem varð annar og Billy Laninovich sem varð þriðiji.  Í aðalkeppninni að þá var það Martin Davalos sem enn og aftur var með bestu ræsinguna en Eli Tomac, Cole Seely og Dean Wilson voru ekki langt undan.  Marvin Musquin sem var búinn að vera með hröðustu tíma á æfingum var með lélega ræsingu og var rétt um miðjan hóp.  Dean Wilson gerði mistök á sama stað og Tyle Rattray datt og fór út úr brautinni með látum.  Sem betur fer slasaðist hann ekki og gat haldið áfram en hann var orðin síðastur.  Fljótlega eftir þetta að þá lenti Cole Seely í að afturdekkið hans fór undan honum eftir að hann hefði verið of graður á gjöfinni og datt hann líka.  Eli Tomac átti líka sín "moment" og var í raun heppinn að falla ekki.  Martin Davalos hélt áfram hefðbundnum hætti og gerði sín klassísku mistök í aðalkeppninni og missti við það Eli Tomac framúr sér sem byrjaði að byggja upp forskot á keppinauta sína.  Zach Osborne var komin upp í annað sætið þegar hér var komið við sögu en var í harðri baráttu við Jasaon Anderson og Marvin Msuquin sem var að sækja grimmt upp með fanta akstri.  Marvin Musquin skellti sér innan á Jason Anderson sem við það fipaðist og féll við og var allt í einu komin hörku baráttu um annað sætið.  Marvin Musquin var ekki hættur og eftir mikið harðfylgi náði hann framúr Zach Osborne sem varð að sætta sig við þriðja sætið.  Er þetta í annað sinn sem Zach Osborne gefur eftir á loka metrunum og gefur eftir annað sætið.  Sem sagt Eli Tomac sigraði, Marvin Musqui varð annar og Zach Osborne varð þriðji.  Það voru ansi blendnar tilfinningar hjá Zach Osborne í viðtalinu eftir keppnina því hann þarf að yfirgefa sviðið og halda á leið til Englands þar sem hann mun halda áfram undirbúningi sínum í FIM mótaröðinni, en hann fékk eingöngu leyfi til að taka þátt í fjórum supercross keppnum.  Eli Tomac leiðir nú stigakeppnina en Dean Wilson er annar.  Zach Osborne er í þriðja sæti en mun ekki far hærr að þessu sinni þar sem hann er á leið til Englands.

 

Í stóra flokknum að þá voru margir að spá í hvað fráfrall mekka James Stewart myndi hafa á liðið.  Í fyrri riðlinum að þá sigraði Ryan Dungey nokkuð sannfærandi en Kevin Windham var ekki langt frá.  Chad Reed var eitthvað að ströggla og varð að sætta sig við þriðja sætið.  Í síðari riðlinum varð æsispennandi barátta á milli James Stewart og Ryan Villopoto, en James Stewart hafði það fyrir rest og varð Ryan Villopoto að sætta sig við annað sætið.  Andrew Short hefur óðum verið að finna sig betur eftir að hann fór úr herbúðum KTM yfir á Honda og ljóst að hann á frekar heima á því hjóli en KTM en hann varð þriðji í þessum riðli.  Í aðalkeppninni að þá var það Chad Reed sem var með bestu ræsinguna en James Stewart og Ryan Willpoto ásamt Jake Weimer voru ekki langt undan.  Stungu þeir fyrst þrír nefndu hina af og byrjaði nú mikil barátta þeirra á milli þar sem allt virtist snúast um að bíða eftir að maðurinn fyrir framan gerði mistök.  Það var þegar komið var fram yfir miðja keppni að James Stewart náði að taka þrengri beygju en Chad Reed og náði þar með forystunni.  Við það byrjaði Ryan Villopoto að sækja á Chad Reed en gerði mistök og missti Chad Reed frá sér í smá tíma.  Byrjaði að sækja aftur en náði ekki að draga á Chad Reed og helst þessi pattstaða allt til loka.  Þar með sigraði James Stewart sitt fyrsta mót í ár og var það vel í ljósi fráfalls mekka hans í JGR liðinu.  Var þetta jafnframt fyrsti sigur hans fyrir nýja liðið JGR.  Chad Reed varð annar og var ekki sáttur við sjálfan sig að hafa misst James Stewart fram úr sér og talaði um að hann hefði keyrt eins og kerling.  Ryan Villopoto var hraðastur í tímatöku og var með hraðasta tíma í brautinni í sjálfri aðalkeppninni en það er eitt að vera hraðastur og annað að komast framúr.  Hann náði því ekki og virtist hann springa á limnum í blárestina og er þetta í fyrsta sinn sem ég sé hann í ár ekki sækja allan tímann.

 Chad Reed leiðir nú stigakepppnina ásamt Ryan Dungey.  Eru þeir báðir með 85 stig eftir fjórar umferðir.  Ryan Villopoto er ekki langt undan og er með 83 stig og James Stewart er í fjórða sæti með 73 stig.  Hér má sjá viðtöl við þá þrjá, þ.e. James Stewart, Chad Reed og Ryan Villopoto eftir keppnina.

Read 284 times Last modified on Monday, 30 January 2012 13:11