Friday, 27 January 2012 10:17

Chad Reed og sagan á bakvið stofnun TwoTwo Motosports

Written by 

Það er svo sem ekkert launungarmál að ég er ansi hrifinn af karlinum honum Chad Reed og tel hann vera með þeim skynsamari í bransanum hvað ökumann varðar.  Alveg frá því að hann hóf keppni að á hefur hann alltaf verið talin "underdog" og hefur umfjöllun um hann því oft verið á þeim nótum.  Hann er samt tvöfaldur AMA Supercross meistari og vann AMA Outdoors 2009.  Árið 2010 var ekki gott ár fyrir Chad Read.  Hann og James Stewart festust saman í fjórðu umferð, að mig minnir, og brotnaði Chad Reed og varð þar með úr leik í supercrossinu.  Svona til þess að fullkomna lélegt ár í supercrossinu að þá greindist hann með vírus í byrjun AMA Outdoors tímabilsins og varð að hætta frekari keppni og sætta sig við að sitja á hliðarlínunni.  Fyrir vikið missti Chad Reed "factory ride" hjá Kawasaki og margir af styrkaraðilum hans til margra ára yfirgáfu hann hver á fætur öðrum.  Fyrir árið 2011 leit þetta ekki vel út hjá kappanum, enginn samningur við lið um að hjóla og fáir styrktaraðilar sem voru tilbúnir að fylgja honum að málum.  Það sem meira var, pressan var búin að dæma kappann úr leik.  En Chad Reed var ekki að baki dottinn og eftir að hafa lagst undir feld með konu sinni, að þá ákveður hann að stofna sitt eigið lið og fjármagna það úr eigin vasa til þess að keppa í supercrossinu 2011.  Þetta útspil margborgaði sig og nú er Chad Reed komin með fullan "factory" stuðning frá Honda og má segja að í augum flestra að þá sé hann ökumaður Honda númer eitt í dag.  Chad Reed lauk keppni í öðru sæti til meistara í AMA Supercrossinu og skákaði þar sínum helsta keppinaut til margra ára James Stewart og Ryan Dungey varð einnig að sætta sig við að horfa á "gamla" manninn enda hærra á stigatöflunni þrátt fyrir allan þann stuðning sem þessir tveir voru með á þeim tíma.  Í lok supercross tímabilsins að þá voru margir að spá í hvort Chad Reed og James Stewart myndu keppa í AMA Outdoors og varð raunin sú að Chad Reed tók þá ákvörðun um að vera með þrátt fyrir að margir vita að hann er hrifnari af supercrossinu en motocrossi og einnig þó svo að hann þyrfti að standa straum að þessu sjálfur á meðan James Stewart bakaði út og lagði ekki í dæmið þar sem hann tímdi ekki að leggja út krónu í dæmið.  Chad Reed leiddi lengi vel stigakeppnina í AMA Outdoors, eða þar til hann lenti í einhverju rosalegasta krassi sem maður hefur séð í sportinu.  Kappinn komst út úr því nokkurn vegin ólaskaður og náði að halda áfram keppni þó hann væri vel marinn en við slysið að þá átti hann við smá sálrænan vanda að stríða sem tengist sjálfsöryggi.  Chad Reed náði því til baka með sigri í fyrsta moto-inu í MXON í Frakklandi í september og varð þá þess fullviss að hann væri kominn inn aftur að fullu.  Fyrir árið 2012 er kappinn fullur sjálfstraust og hefur nú þegar landað einum sigri í fyrstu þremur keppnunum, en Chad Reed er þekktur fyrir að vera smá tíma að komast í gang.  Hér má sjá fyrsta myndbandið af nokkrum þar sem farið er aðeins yfir söguna á því hvernig liðið hans TwoTwo Motosports varð til og hver munurinn er fyrir hann að vera bæði liðseigandi og keppandi á móti hinum sem þurfa eingöngu að hugsa um að sigra.  

Read 327 times