Tuesday, 24 January 2012 21:42

Fyrsta umferðin í íscrossi til Íslandsmeistara - skráning hafin á vef MSÍ

Written by 

Eins og flestir vita sem hafa fylgst með á vefnum að þá er skráning hafin á vef MSÍ í fyrsta mót ársins til Íslandsmeistara í íscrossi.  Þess keppni markar upphafið að keppnisdagatali MSÍ sem verða líklegast fleiri en nokkri sinni fyrr.  Góður hópur hjólamanna hefur mætt á ísinn síðan í desember og er það von MotoMos, VÍK og MSÍ að sá hópur skili sér í keppni í ár og geri þar með mótaröðina spennandi.  Skráningarfrestur er til fimmtudags og nú þegar hefur bæst í hópinn af væntanlegum keppendum.  Aðstæður til keppnishalds eru með ágætasta móti og hætti formaðurinn sér í bíl með Gunna "painter" út á miðjan ísinn þar sem þeir mældu hann og var meðalþykkt hans frá 45-55 cm.  Þannig að ísinn er í fínu standi.  Gert er ráð fyrir að keppnin verði austan megin á vatninu og er það sá hluti sem við höfum ekki hjólað á síðan að vötn lögðu.  Með öðrum orðum, það svæði er "óspillt" ef svo má komast til orða og ísinn rennisléttur.  Ég endurtek að skráingarfrestur rennur út á fimmtudaginn.

Read 196 times