Wednesday, 18 January 2012 23:38

Fyrsta umferðin í Íslandsmeistaramótinu í íscrossi fer líklegast fram á Hafravatni

Written by 

Eins og þeir vita sem hafa eitthvað kynnt sér keppnisdagatal MSÍ að þá er farið að styttast hressilega í fyrstu umferðina til Íslandsmeistara í íscrossi en gert var ráð fyrir að hún myndi fara fram laugardaginn 28 janúar .  Ekki hefur verið tilkynnt formlega hvar keppnin verður haldin en skv. dagskrá að þá átti/á að reyna að halda keppnina á suðvesturhorninu.  Eins og staðan er núna að þá eru miklar líkur til þess að keppnin verði haldin á Hafravatni í Mosfellsbæ, að sjálfsögðu með þeim skilyrðum að viðeigandi leyfi fáist.  Opnað verður fyrir skráningu á vef MSÍ fyrir helgi og ættu væntanlegir keppendur að geta byrjað að skrá sig fyrir helgi.  Veðurspáinn, ef eitthvað er að marka hana, lítur ágætlega út hvað frostið varðar alla vega og á að vera áframhaldandi frost til 27 janúar í það minnsta og ef það gengur eftir að þá verða aðstæður til keppnishalds með besta móti hér á suðvesturhorninu sem gerist nú ekki á hverjum degi.  Áætlað er að halda þrjár umferðin til Íslandsmeistara eins og venja hefur verið síðustu ár og er önnur umferðin áætluð á Akureyri 11 febrúar og síðasta umferðin á að fara fram á Mývatni eins og venja hefur verið síðustu ár.  Ef aðstæður munu breytast veðurfarslega séð að þá er Mývatn hugsað til vara til að halda allar keppnir.  En eins og ég sagði að þá er ekki annað að sjá en það verði hægt að halda keppnina hér á suðvesturhorninu ef veðurspáin gengur eftir.  

MotoMos og VÍK munu standa að í sameiningu að þessari keppni á laugardaginn 28 febrúar og er það von okkar að sem flestir skrái sig enda var töluverður hugur í mönnum í upphafi þegar vötn lögðu og hægt var að skella sér á ísinn.  Þó það sé vetur að þá er hægt að hafa gaman af þessu og enginn ástæða til þess að láta hjólin liggja í geymslu því þau þurfa ekkert á hvíld að halda.  Ef eitthvað er, að þá er það notkunarleysi sem fer hvað verst með hjólin eins og flesta hluti.  Svona lítur langtímaspáin út til fimmtudags 26 janúar í næstu viku.

Read 223 times