Wednesday, 18 January 2012 14:03

Dakar rallýinu lokið - Cyril Despres sigurvegari

Written by 

Þá er Dakar rallýinu lokið og í raun lauk það á mánudaginn.  Ég hef ekki flutt daglegar fréttir af Dakar rallýinu þó svo að ég hafi fylgst með því á hverjum degi og stafar það einfaldlega af tómri léti.  Keppnin í ár var eins og ævinleg nokkuð hörð en fljótlega varð ljóst í hjólaflokknum að baráttan myndi standa á milli Cyril Despres sigurvegara frá árinu 2010 og Marc Coma sigurvegara frá í fyrra, báðir á KTM.  Sá sem var næstur þeim var Helder Rodrigues á Yamaha sem endaði í þriðja sæti eins og í fyrra.  Cyril Despres og Marc Coma voru í raun í algjörum sérflokki en lentu þó í ýmsu eins og aðrir keppendur.  Helsti munurinn á þeim og öðrum var þó að þeir virtust villast minnst af þeim sem kepptu.  Cyril Despre sigraði með um klukkutíma forskot og tæplega19 mínútna betur á Marc Coma og var heildartíminn hans 43:01:54.  Marc Coma var á 44:21:31 og Helder Rodrigues sem varð þriðji var á 44:39:28.  Hér fyrir neðan má sjá samantekt frá keppninni í ár, en ég naut þess að geta séð þetta á EuroSport á hverju kvöldi góða samantekt eftir hvern dag.  Fyrir neðan má svo sjá atvikið þegar Cyril Despres endastakkst þegar jarðvegurinn var eitt drullusvað og í kjölfarið koma Helder Rodrigues sem gerði sömu mistök.  

Þessi keppni er ekkert grín og því miður slasast fjöldinn allur af keppendum í þessari keppni og eru iðulega afföll í mótorhjólaflokknum.  Fyrir neðan samantektina er svo krössin hjá Ike Klaumann sem meiddist mjög illa og þar fyrir neðan Quin Alxis Cody.

Hér er svaðalegt atvik þegar Ike Klaumann fer fram fyrir sig og varð úr leik.  En ökumenn eru að keyra á rúmlega 100 km/klst og síðan fá þeir hjólið ofan á sig sem getur verið hátt í 150-160 kg. og er það ekkert grín.  Það þarf ekki að taka fram að Ike Klaumann varð úr leik við þetta krass.

Hér má svo sjá þegar Quin Alexis Cody fór hressilega á granirnar og hefur þetta ekki verið gott.  Hann þurfti að hætta keppni eins og gefur að skilja.

 

Read 196 times