Eins og ég hef sagt að þá er keppnin orðin gífurlega hörð í ár í supercrossinu og hefur margur topp ökumaðurinn endað í LCQ og hefur ekki verið á vísan að róa með að komast upp úr þeim riðli. Ryan Sipes hefur í tvígang þurft að fara í LCQ það sem af er tímabilinu. Í fyrra skiptið komast hann í aðalkeppnina og endaði í fimmta sæti en í seinna skiptið komst hann ekki eftir að Matt Moss tók hann út í eftir að það voru þrjár beygjur að endamarki. Já, margur spekúlantar hafa tjáð sig lítillega um þetta atvik þar sem Matt Moss tók þá báða út og gefið í skyn að greindarvísitala Matt Moss sé ekki upp á marga fiska og í raun undir 65 sem er simpansi ungi án verkþjálfunnar..:0) Hér sést hvernig sjónarhornið var fyrir Ryan Sipes þegar Matt Moss tók hann út. Já, magnað að sjá þetta frá þessu sjónarhorni eftir að allir ökumenn eru komnir með GoPro á hausinn.