Hér má sjá myndband af Ryan Dungey og Marvin Musquin hjá KTM fyrir komandi keppni í Phoenix supercrossinu. Ryan Dungey vann það afrek fyrir KTM að koma því í fyrsta sinn á pall í AMA Supercrossinu í sögunni. Leit pilturinn ágætlega út og kom það honum mjög vel að vera með rafstart í hjólinu þegar hann datt eftir nokkra hringi í aðalkeppni. Má með vissu segja að hann hafi tapað mun færri sekúndum en ella ef hann hefði þurft að sparka hjólinu í gang upp á gamla mátann. Marvin Musquin leit einnig mjög vel út í sinni fyrstu supercrosskeppni í lites flokknum. Þessi piltur á eftir að lenda á palli eftir því sem sjálfsöryggið eykst og er hann farinn að fá smá athygli sem hann á hugsanlega skilið vegna meiðsla Ken Roczen.