Trey Canard áætlar að keppa í næstu umferð í AMA Supercrossin sem fer fram í Phoenix, Arizona um núna um helgina. Trey Canard gerði tilraun til að vera með um síðustu helgi í Anaheim, en varð því miður frá að hverfa þar sem hann var ekki tilbúinn. Aftur á móti er annar hrakfallabálkur að upplifa sömu sorgina og árið á undan, en það er Wil Hahn hjá Geico Powersport Honda. Stráksi mjaðmagrindabrotnaði við æfingu núna á miðvikudaginn og verður ekki með í það minnsta 3-6 vikur. En supercross tímabilið byrjar jafn gæfulega hjá honum og í fyrra þar sem hann slasaðist á æfingu á A1 í fyrra og var ekki meira með í supercrossinu það árið. Josh Hill sem var að koma til baka eftir mjög erfið meiðsli síðust tvö ár verður ekki með næstu 4-6 vikurnar þar sem hann er viðbeinsbrotinn eftir að Ryan Villopoto fór utan í hann í fyrstu beygju eftir ræsingu í undanriðlinum og datt Josh Hill nokkuð illa sem leiddi til þessara áverka.