Friday, 13 January 2012 10:50

"The next big thing" - Adam Cinciarulo

Written by 

Þessi strákur er búinn að fá mikla athygli og umfjöllun síðustu þrjú til fjögur ár og hefur verið talinn "the next big thing" í motocross heiminum.  Ég vona að stráksi eigi eftir að standa undir þeim væntingum sem til hans eru gerðar en hann er fyrsti ökumaðurinn á 85cc hjóli sem Mitch Payton í Pro Circuit liðinu gerði samning og jafnframt sá yngsti í sögunni.  Við eigum eftir að sjá hann í AMA Supercrossinu í lites flokki árið 2013 og verður spennandi að sjá hvað hann gerir.  Hér má sjá myndband af honum þar sem hann er að færa sig yfir af 85cc hjóli og upp á 125cc hjóli sem sýnir að þeir úti eru ekki að láta þess stráka stökkva beint á 250cc fjórgengishjól eins og oftast hér heima.  Ég ef það ekki að Adam Cinciarulo ráði betur við 250F hjól en margur annar sem komið hefur upp hér heima og því tel ég að þetta sé eðlileg þróun í því að fara upp um flokka.

Read 329 times Last modified on Friday, 13 January 2012 11:02