Sunday, 08 January 2012 16:37

AMA Supercross tímabilið formlega hafið...

Written by 

Þá er það loksins hafið, AMA Supercross hófst með látum í gær og fór fyrsta umferðin eins og oftast í Anaheim.  Fyrir mótið var mikil spenna um að sjá hvað James Stewart myndi gera í nýju liði og hvort að lukkan væri ennþá með Ryan Villopoto, en hann var með meistaraheppni í fyrra sem skilaði þremur titlum á síðasta ári.  Einnig voru menn mikið að velta því fyrir sér hvernig Ryan Dungey myndi reiða af á nýja KTM hjólinu og svo náttúrulega má ekki gleyma þeim sem má aldrei afskrifa, en það er engin annar en Chad Reed sem virðist vera herra ódrepandi.  Ég verð þó að segja það að mér fannst brautin algjörlega glötuð í alla staði og var nánast ein lína í gegnum hana alla sem þýddi það að sá sem náði bestri ræsingu vann í lottóinu þann daginn.

Það var ljóst að þegar "lites" ökumennirnir komu að að ráshliðinu að nokkur taugatitringur var á meðal ökumanna.  Ekki fór ræsingin af stað hjá öllum eins og menn vonuðu og var strax fall í fyrstu beygju.  Eins og ég sagði í upphafi, að þá var brautin einkennileg í alla staði.  Sigurvegari í fyrsta undanriðlinum var Wil Hahn sem keyrði rosalega vel, annar varð Tyle Rattray og þriðji varð enginn annar en Marvin Musquin sem er loksins að sýna sitt rétta andlit.  Í seinni undanriðlinum að þá var það Martin Davalos sem sigraði, Dean Wilson varð annar og Nico Izzi varð þriðji.  Eli Tomac lenti í tómu veseni í fyrsta undanriðlinum og var ekki nóg með að hann datt, heldur bilaði hjólið.  En hann sigraði LCQ léttilega og þar var annar ökumaður sem átti alls ekki að vera þar á meðal, en það var Ryan Sipes sem laut einnig í gras í sínum undanriðli og þurfti að fara í LCQ.  Ryan Sipes fylgdi Eli Tomac inn í aðalkeppnina.

Í aðalkeppninni í lites flokknum að þá voru það Pro Circuit gaurarnir sem voru með bestu ræsinguna en á hæla þeirra kom Cole Seely sem fljótlega náði fram úr Dean Wilson og fyrir rest náði fram úr Tyle Rattray eftir að hafa verið á afturdekkinu á honum nánast frá þriðja hring.  Eli Tomac náði rétt meðal ræsingu og sýndi úr hverju hann er gerður og keyrði hann fantavel.  Í lokin gerði Dean Wilson afdrifarík mistök og náði Eli Tomac framúr honum.  Dean Wilson var ekki sannfærandi í gær og fannst mér hann ekki vera í sínum vanalega rythma eða fullur sjálfstrausts.  Sigurvegari dagsins var Cole Seely, annar varð Tyle Rattray sem virkaði óvenju sterkur í ljósi þess að hann hefur ekki keyrt mikið supercross í gegnum tíðina og þriðji varð Eli Tomac sem ég tel að sé sá sem fólk ætti að fylgjast með í ár í þessum flokk.  

Í 450 flokknum að þá var Ryan Villopoto mjög heppinn að fara ekki á granirnar í fyrstu beygju, en mistök hans kostaði það að Josh Hill datt og meiddist hann aftur.  Óljóst er með framhaldið hjá Josh Hill sem var að koma til baka eftir tveggja ára fjarveru en þetta leit ekki vel út hjá honum og var hann að vonum mjög vonsvikinn.  Það var Chad Reed sem sigraði nokkuð auðveldlega í þessum riðli en Mike Alessi varð annar og Ryan Villopoto sýndi að hann var sá hraðasti í dag og vann sig upp úr miðjum hópi ökumanna upp í þriðja sætið.  Já, Ryan Villopoto var með línur og hraða sem aðrir virtust eiga í erfiðleikum með að sýna.  Í síðari riðlinum að þá var það James Stewart sem virtist vera líkur sjálfum sér, en hann var með frekar slappa ræsingu.  Annar varð Ryan Dungey og Andrew Short varð þriðji.  Það voru mjög sterkir ökumenn í LCQ og endaði það þannig að Justin Brayton vann LCQ og Tommy Hahn fylgdi með honum.  En það var fullt af mjög góðum ökumönnum sem komust ekki áfram og má segja að A1 standi undir nafni sem upphaf nýrra vona eða brostina drauma.

Í aðalkeppninni að þá náði Ryan Villopoto lang bestri ræsingu og er lítið annað um það að segja að hann hreinlega stakk af.  Chad Reed varð annar og hékk nálægt Ryan Villpoto eingöngu í einn hring.  James Stewart átti lélega ræsingu og fór að vinna sig upp.  Náði hann að vinna sig upp í þriðja sæti þegar að Ryan Dungey gerði mistök, en þá kom að kafla í fari James Stewart sem við urðum fyrst vitni af í fyrra, en hann hreinlega hætti og virtist missa áhugan.  Ryan Villopoto var komin með um 12 sekúndna forskot þegar hér var komið og kannski mat James Stewart það þannig að þetta væri einfaldlega ekki hægt í þessari braut, en samt sem áður að þá voru það mikil vonbrigði að sjá hvernig hann brást við og hlýtur það að vera áhyggjuefni fyrir hann sjálfan og hvað þá nýja liðið hans JGR.  Það sem gerist alltaf þegar menn hætta eða gefa eftir í einbeitingu, að þá gera menn mistök og gerði James Stewart það og datt eina ferðina enn. Voru þetta afdrifarík mistök hjá James Stewart því Chad Reed datt og ef James Stewart hefði verið að sækja, að þá hefði hann auðveldlega getað komsti í annað sætið við fall Chad Reed.  En í staðinn var hann að berjast við Ryan Dungey um þriðja sætið og var ekki líkur sjálfum sér, nema ef þetta er hinn sá James Stewart sem við eigum eftir að sjá í framtíðinni.  Við það komst Ryan Dungey upp í þriðja sæti og James Stewart datt í sjötta sæti og var ansi aumkunarverður að sjá eftir það fall, satt að segja.  

Þannig endaði það að Ryan Villopoto hreinlega stakk alla af og dómineraði keppnina með þvílíkum yfirburðum að aðrir hljóta að hafa áhyggjur af framhaldinu.  Chad Reed skilaði sínu og varð í öðru sæti og skildi maður aldrei afskrifa Chad Reed.  Ryan Dungey kom KTM í fyrsta sinn á pall í 450 flokk í supercrossinu, að ég held, og virtist vera búinn að ná ágætum tökum á hjólinu.  Vonbrigði dagsins voru klárlega James Stewart og það hugarfar sem hann sýndi þegar Ryan Villopoto var komin með 12 sekúndna forskot.  Þetta er ekki sá James Stewart sem við þekkjum og ég held að það hafi ekkert með hjólategund að gera, heldur er þetta einfaldlega eins og þegar boxari er rotaður í fyrsta sinn, að þá koma þeir stundum aldrei til baka og hreinlega hverfa af sjónarsviðinu.  Ég vona að svo sé ekki upp á teningnum í ár og að við eigum ekki eftir að missa James Stewart út því hann er einn allra vinsælasti ökumaður í sportinu frá upphafi og laðar að bæði áhorfendur og fær umfjöllun sem engir aðrir hafa náð og það þarf sportið.  En það er á brattann að sækja hjá honum og er hann tíu stigum á eftir Ryan Villopoto og greinlilegt að sumir þurfa að girða sig í brók ef þeir ætla að eiga einhvern möguleika í hann.

Keppnin er komin á netið og má sjá aðalkeppnina hér fyrir neðan eins og hún birtist á YouTube en einnig er komið torrent á netið og er hægt að nálgast það með að smella hér.  

 

 

 

Read 293 times Last modified on Sunday, 08 January 2012 17:29