Friday, 06 January 2012 15:39

Eigum við að ræða þessar umbúðir eitthvað...

Written by 

Ég varð að deila þessari mynd með ykkur en Yamaha MotoGP ökumaðurinn Andrea Dovizioso braut viðbein þegar hann var að hjóla á motocrosshjóli.  Er þetta nú ekki í fyrsta sinn sem götuhjólapiltar slasa sig á motocrosshjóli.  En ég átti ekki til orð yfir myndinni sem birtist með þessu í erlendum vefmiðlum.  Eigum við að ræða eitthvað þessar umbúðir?  Þetta er rosalegt og ég efast um að þessi vafningur myndi nokkurn tímann sjást hér heima.  Þetta er svo hræðilegt að þetta er hallærislega fyndið.

Read 491 times Last modified on Friday, 06 January 2012 15:47