Friday, 06 January 2012 12:31

Bikarmóti MotoMos í íscrossi aflýst vegna dræmrar þátttöku

Written by 

Vegna ónógrar þátttöku og dræmra undirtekta að þá hefur MotoMos ákveðið að hætta við áður auglýst bikarmót í íscrossi á Hafravatni laugardaginn 7 janúar.  Rétt um tíu keppendur hafa skráð sig til leiks og er ekki stætt á því fyrir klúbbinn að halda keppni gangandi með þeim fjölda.  MotoMos þakkar þeim sem skráðu sig fyrir sýndan áhuga og mun endurgreiða að fullu keppnisgjaldið til þeirra sem skráðu sig.  Senda þarf upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. til þess að hægt verið að ganga frá endurgreiðslu til keppenda.  MotoMos vonar að hjólamenn taki svo betur við sér þegar næsta fyrirhugaða mót verður auglýst og óskar hjólamönnum góðrar hvíldar í vetur, sem sannarleg virðist vera þörf á, og vonar að með hækkandi sól verði menn tilkippilegri.

Read 208 times Last modified on Friday, 06 January 2012 13:07