Thursday, 05 January 2012 13:39

Trey Canard komin í gang og verður með um helgina í A1

Written by 

Þessi hrakfallabálkur síðustu ára og frábæri ökumaður Trey Canard er aftur komin á stað þrátt fyrir að hafa brotið viðbein fyrir nokkrum vikum.  Það sem meira er, hann er inn fyrir A1 keppnina um helgina og verður það að teljast ansi merkilegt í ljósi hversu stutt er síðan hann slasaðist.  Þetta á bara eftir að auka á spennuna um helgina þó svo að ég efist um að hann verði komin á þann stað í sínum undirbúningi eins og keppinautar hans fyrir helgina.  Á ég ekki von á því að hann geri einhverjar rósir en topp 5 hjá honum miðað við aðstæður um helgina er sigur útaf fyrir sig.  Hér má sjá myndband af kappanum tekið 3 janúar og lítur hann bara þokkalega út kappinn.

 

Read 239 times