Tuesday, 03 January 2012 22:04

Búið að opna fyrir skráningu í bikarmót MotoMos í Íscrossi á vef MSÍ

Written by 

Það er búið að opna fyrir skráningu á vef MSÍ í bikarmótið sem MotoMos ætlar að halda á laugardaginn 7 janúar á Hafravatni.  Þátttökugjald er lágt, eða aðeins 3.500 kr.  MotoMos vonast eftir því að sem flestir skrái sig því við erum að reyna að búa til fordæmi að það sé keppt á þessum vötnum á suðvesturhorninu og því skiptir það miklu máli að þátttaka sé góð sem ýtir undir frekari keppnir á vötnum hér í nágrenninu.  Með öðrum orðum að þá erum við að reyna að skapa hefð fyrir því að keppt sé á þessum vötnum upp á framtíð sportsins að gera.  Aðstæður á Hafravatni eru ágætar.  Það er smá harður krapi sem hefur frosnað hressilega á því svæði sem við förum venjulega út á ísinn þar sem menn hafa verið að keyra þegar krapi var yfir en um leið og menn fara innar á ísinn, þar sem keilurnar eru fastar fyrir, að þá er ísinn orðin ágætur og snjóþykkt mesta lagi 2-3 cm.  MotoMos vonast eftir að sjá sem flesta en þetta er fyrsta opinbera bikarmót MotoMos.  Hægt er að skrá sig með að smella hér eða einfaldlega að fara bara beint á vef MSÍ, www.msisport.is, og "logga" sig inn eins og í venjulegu Íslandsmeistaramóti.  

Veðurspáin fyrir keppnina er ágæt og á að vera alveg blankalogn, ef eitthvað er að marka veðurfræðina, og verður smá hláka og hitastigið í kringum 2-3°C.  Hér má sjá langtíma spánna fyrir komandi daga á Reykjavíkursvæðinu.

Read 239 times Last modified on Tuesday, 03 January 2012 22:21