Monday, 02 January 2012 23:40

Mikið um að vera um næstu helgi í sportinu

Written by 

Það er ansi stór helgi framundan hjá okkur áhugafóki um motocross og supercross, en um næsta helgi er opnunarkeppni í AMA Supercrossinu og er bein útsending á Speed TV sem einhverjir ná sem eru með gervihnattadisk.  Þessi keppni markar upphafið að keppnistímabilinu í henni Ameríku og framundan eru sautján spennandi keppnir sem endar með því að einn aðili stendur eftir sem sigurvegari í Las Vegas næsta vor.  Mörgum leikur forvitni á að vita hvernig Ryan Dungey mun vegna á KTM hjólinu þó svo að hann sé aftur komin undir leiðsögn Roger DeCoster.  Því miður verður Ken Roczen ekki með í byrjun þar sem hann handleggsbrotnaði og það sama á við PJ Larsen sem lenti í því sama á sömu braut nokkrum dögum seinna.  Reiknað er með að þeir báðir munu koma til leiks þegar East Lites flokkurinn hefst.  En ég er á því að Ken Roczen hafi þroskast mikið sem ökumaður á síðasta ári og hafi virkilega átt séns í ár.  Vonandi verður hann heill heilsu þegar East Lites flokkurinn byrjar.  Sá aðili sem á eftir að sanna sig þarna vestra er Marvin Musquin, tvöfaldur FIM heimsmeistari í motocrossi.  Hann hefur nánast verið meiddur frá því að hann kom til Bandaríkjana en hann sýndi það í sumar að hann hefur hraða og getu til að vera með þeim best.  Það væri gaman að sjá hann í topp 5 í lites flokknum. 

Mikið var spekúlerað og spáð í stöðu James Stewart í sumar og hvað hann myndi gera.  Flestir og þar á meðal ég töldu að hann væri hinn raunverulegi eigandi L&M og upp úr hefði soðið á milli James Stewart og Larry Brooks sem var einn eigandinn og liðstjóri.  Annað hefur komið á daginn og reyndi Suzuki mikið að fá hann til liðs við sig.  Það gekk ekki og fór James Stewart til JGR og verður áfram á Yamaha.  Stóra spurningin er, nær hann að ná aftur í það sjálfstraust sem hann hafði þegar hann varð nánast ósigrandi 2007?  Hjá JGR ætti hann ekki að líða skort hvað fjármagn og aðgang að aðföngum fyrir sig sem vonandi nýtist honum í keppnunum í vetur.

Það verður þó að segjast að allt virðist vera að rúlla með Ryan Villopoto og verður hann að teljast sigurstranglegur fyrir komandi tímabil, enda vann hann bæði AMA Supercross, AMA Motorcross og Monster Energy Cup í haus ásamt að leiða lið USA til sigur á MXON í Frakklandi.  Chad Reed er sá aðili sem hefur unnið sér mikla virðingu hjá mér í sportinu og verður að teljast kandítat til titils þar sem hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera og hefur hann náð í einn aðalmekkann í sportinu sem var áður hjá Suzuki og sinnti Ryan Dungey.  Josh Hill snýr aftur til keppni eftir fáranlegt "stunt" atriði þar sem hann reyndi að gera "backflip" á hjólinu sínu sem nánast endaði líf hans og feril hans sem ökumaður.  Já, af atvinnumanni sem virtist vera að ná allt rúlla með sér, að þá var þetta hreint út sagt fáranleg ákvörðun og sýnir að stundum þarf að hafa vit fyrir þessum hvolpum.  Kevin Windham verður flottur eins og alltaf en ég tel hann ekki koma til greina sem titilhafa, en gæti endað í topp 5.  Kevin Windham er vinsælasti ökumaðurinn í sportinu í dag og hefur áunnið sér mikla virðingu á meðal áhorfenda sem og annara keppenda.  Hugsanlega verður "live stream" sem hægt verður að sjá á netinu, en keppnin er um miðja nótt og lýkur ekki fyrr en undir morgun hér heima þannig að það getur orðið erfitt að halda sér vakandi.

En fyrir þá sem geta ekki náð AMA Supercrossinu en vilja samt sjá supercross, að þá er hátt í 100 keppendur búnir að skrá sig í þýska supercrossið sem fer fram í Dortmund þessa helgi og fer fram dagana 6-8 janúar.  Þarna eru nokkrir mjög góðir en flestir evrópskir eins og gefur að skilja.  Hægt verður að horfa á "live stream" frá supercrossinu í Dortmund og er hægt að finna linkinn á þessari síðu með að smella hér.

Read 247 times Last modified on Tuesday, 03 January 2012 00:15