Monday, 02 January 2012 11:45

Mika Ahola hættur

Written by 

Þá hefur það verið staðfest að Mika Ahola, einn fremsti endurökumaður heims í dag og fimmfaldur heimsmeistari, hefur lagt skónna á hilluna.  Undarlegar fréttir bárust í lok síðsta ár þess efnis að Mika Ahola hefði skrifað undir samning við hjólaframleiðanda sem hreinlega enginn vissi af og heitir JotaGas.  Þessi samningur sem Mika Ahola átti að hafa gert til tveggja ára eða gerði á sínum tíma þar sem gert var ráð fyrir að hann myndi keppa á nýju hjóli frá JotaGas 300 MK tvígengishjóli virðist því hafa gengið sér til húðar og miðað við opinbera fréttatilkynningu frá Mika Ahola og konu hans, að þá er þessi samningur dauður og ómerkur því Mika Ahola er hættur frekari keppni 37 ára að aldri.  Mika Ahola er elsti ökumaðurinn til að vinna heimsmeistaratitil í E3 á síðasta ári og hefur skapað sér stöðu sem einn besti endurökumaður samtímans síðustu ár.  Það verður sjónarsviptir af Mika Ahola og nú bíður maður eftir því hvað JotaGas gerir, þ.e. hvort einhverjir eftirmálar verða af þessari tilkyningu Mika Ahola að hætta keppni og hver hin raunverulega staða er á þessum tveggja ára samning á milli Mika Ahola og JotaGas.

Read 294 times