Þessi þáttur í meðferð pústkerfa er því miður illa sinnt hér heima af flestum ökumönnum og ég þori nánast að veðja að bróðurpartur þeirra sem kaupa sér rándýr pústkerfi, endurpakki þeim aldrei og hafi í raun aldrei opnað pústið. En það eru mikil mistök ef þeirra hálfu því pústið tapar afli þegar pakkninginn sem fyrir er brennur upp með tímanum og hávaðinn í pústinu eykst sem veldur öðrum en ökumanni viðkomandi hjóls óþægindum. Já, aukin hávaði þýðir ekki aukið afl því þvert á móti að þá tapar pústið getu til að skila því afli sem ætlst er til af hálfu framleiðanda þegar pakkningin fer að gefa eftir með tímanum, sem hún gerir. Þó aukin hávaði og afltap sé ekki það eina sem fylgir í kjölfarið, því ef þegar pakkningin inn í pústinu er horfin að þá er hætta á að rörið inn í pústinu geti brotnað í lendingu eftir stökk á palli og þá er rándýra pústkerfið nánast ónýtt eða illa laskað í það minnsta. Hér sýnir FMF hvernig á að pakka FMF pústi og skora ég á ökumenn að endurpakka pústkerfum sínum reglulega, sérstaklega ef menn eru að sækjast eftir hámarksafli að þá skiptir þetta miklu máli.