Friday, 21 January 2011 14:21

1. umferð Ís-Cross á Mývatni 29. janúar

Written by 

Tekið af vef MSÍ

1. umferð Íslandsmótsins í Ís-Cross fer fram á Mývatni laugardaginn 29 janúar.  Keppendur ATH!  Nú rennur skráningartími alltaf út kl: 21:00 á þriðjudagkvöldi fyrir keppnishelgi.  Ekki verður um neinar undantekningar að ræða með skráningu eftir að skráningarfrestur rennur út.  Við viljum benda keppendum á að athuga aðgang sinn að heimasíðu MSÍ tímanlega, ekki verður tekið við símtölum á elleftu stundu ef keppendur ná ekki að skrá sig inn.  Þeir sem eru í vandræðum með innskráningu þurfa að hafa samband við formann þess aðildarfélags MSÍ sem viðkomandi er skráður í.  Það er hægt að skrá sig inn á heimasíðuna án þess að klára skráningu í viðkomandi keppni til þess að athuga hvort innskráning virkar.  Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Vetrardekkjaflokki
  • Kvennaflokki
  • Unglingaflokki (keyrir með Vetrardekkjaflokks ef 5 eða fleiri skrá sig)
  • 85cc flokki (keyrir með Kvennaflokki ef fleiri en 5skrá sig)

Öllum keppendum er boðið frítt í Jarboðin að keppni lokinni og er um að gera að nýta sér það.  Akstursíþróttafélag Mývatnssveitar sér um keppnishaldið og eins og flestir vita klikkar það ekki.

Read 688 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 23:43