Friday, 30 December 2011 11:42

Hjólum og búnaði stolið

Written by 

Enn og aftur eru þessir aumingjar á ferli og eru að fara inn í húsnæði og taka búnað ófrjálsri hendi.  Nú rétt í þessu sendi hann Skúli Johnsen mér póst þar sem hann bað mig að koma á framfæri auglýsingu um að búið væri að stela þremur hjólum + öllum búnaði hjá tengdaföður hans og konu, en þessu var stolið úr geymsluhúsnæði í Mosfellsbæ (iðnaðarhverfinu ekki langt frá Ístak).  Hjólin eru:

  • KTM EXC 450 árgerð 2002 með ónýtri afturgjörð (sprakk hjólalega þannig að það koma stór spurnga í miðjuna á felgunni)
  • KTM EXC 450 árgerð 2006 sem er í "original" útliti og í flottu standi
  • Honda CR85 árgerð 2006 sem var mjög lítið notað og ennþá á "original" dekkjum

Eins og ég sagði í upphafi að þá var allur búnaður tekinn, hjálmar, gallar, jakki, hanskar, gleraugu o.fl. sem var allt í stórri töksu en búnaðurinn komin nokkuð til ára sinna.  Þjófarnir reyndu við snjósleða sem var líka á svæðinu en gáfust upp þar sem þeir komu honum ekki í gang, sem betur fer.  

Þetta er mikið tjón og biður Skúli ykkur um að hafa augun opin hvað þessi hjól varðar og biður ykkur um að ef þið hafið minnsta grun um hvar þessi hjól eru niðurkomin eða haldið að þið hafið séð þau, að þá getið þið hringt í síma 865-6979 eða sent SMS.  Skúli kemur þessu svo áleiðs en einnig er hægt að hafa beint samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

 

Read 686 times Last modified on Friday, 30 December 2011 11:54

Related items