Friday, 30 December 2011 10:41

Sá atburður sem stóð upp úr árið 2011

Written by 

Hvaða atburður fannst þér standa upp úr á líðandi tímabili fyrir árið 2011?  Það gekk mikið á í AMA Supercrossinu og einnig í AMA Motocrossinu.  Í AMA Supercrossinu að þá var það klárlega krassið hjá James Stewart í Daytona keppninni sem stendur upp úr hjá mér og síðan í næststíðustu umferð þegar hann fer á granirnar í tvígang í sömu vúpsum og gerir það með titilvonir sínar að engu þetta árið.  Í AMA Motocrossinu að þá er það feita krassið hans Chad Reed sem stendur upp úr og í raun er það sá atburður sem stendur upp úr að mínu mati fyrir allt árið, enda svaðalegt dæmi og ótrúlegt að maðurinn skyldi standa upp frá þessu og hvað þá halda áfram keppni.  Í FIM mótaröðinni gekk einnig mikið á og strax í fyrstu umferð slasaðist meðal annars Antonio Cairoli en náði að halda áfram keppni.  Steven Frossard og Clément Desalle meiddust báðir hressilega og Ken Roczen keppti í síðustu keppninni í MX2 á 125cc tvígegnishjóli.  Það náði þó ekki sömu athygli og krassið hjá Chad Reed í AMA Motocrossinu.  

Hér heima smullu þeir Bjarki Sigurðsson og Viktor Guðbergsson hressilega saman í fyrstu umferðinni á Sauðárkróki og Hjálmar krassaði feitt á sama palli.  Það krass gaf eiginlega tóninn á því sem koma skal hjá Hjálmari sem var í tómu veseni framan af tímabilinu.  En það var ekki bara þessi atburður sem slíkur sem vakti athygli mína með keppnina á Sauðárkrólki, heldur sú staðreynd að tveir keppendur voru svartflaggaðir úr keppni fyrir að stökkva á palli og stofna í hættu slösuðum keppendum og starfsmönnum sem voru að hlúa að honum.  Já, það voru kaldhæðni örlagana að það skyldi verða bróðir Hjálmars sem lá slasaður, Björgvin Jónsson, ásamt einum reynslumesta keppnismanni Íslands Ragga "heimsmeistara" sem fengu að kynnast svarta flagginu.  Afrek Eyþór Reynissonar að landa þremur Íslandsmeistaratitlum þetta árið verður þó að teljast sá atburður sem stendur upp úr í ár hér heima þrátt fyrir skemmtilega tilburði hjá öðrum.

Hér má sjá krassið hjá Chad Reed sem var rosalegt og fyrir neðan má svo sjá krassið hjá James Stewart í Daytona keppninni sem markaði þáttaskil hjá honum þetta árið í supercrossinu og upp frá því var James Stewart ekki eins öruggur með sig og venjulega.  Myndbandið með James Stewart er aðeins lengra og sýnir smá frá byrjuninni, þ.e. hversu mikla yfirburði hann hafði í Daytona áður en hann krassaði.

Read 396 times Last modified on Friday, 30 December 2011 11:12