Þessir drengur man tímana tvenna en hann er búinn að vera frá vegna meiðsla meira og minna allt þetta ár þar sem hann hefur tvílærbrotnað og nú síðast braut hann viðbein. Hér er hann aðeins byrjaður að hjóla aftur og viti menn, hann fer hressilega á granirnar en sleppur sem betur fer við frekari meiðsli en ætli hann sé ekki orðin pínu skeptískur þessa dagana á að hjóla. Ég veit ekki hvort þetta er tekið áður en hann braut viðbeinið nú síðast og því miður verður hann ekki tilbúinn til að taka þátt í byrjun á supercross tímabilinu sem hefst 6 janúar og ef hann heldur þessu áfram að þá á það eftir að dragast enn frekar á langinn. Hér fyrir neðan er síðasta krassið hjá piltinum sem er nýlega skeð og síðan má sjá þar fyrir neðan krassið hjá piltinum í Washougal í AMA Motocrossinu sem tók hann aftur úr leik með brotið læri og þar fyrir neðan sem er upphafið af fall tímabilinu hjá honum þegar hann krassar feitt í AMA Supercrossinu í þriðju umferð í Los Angeles.