Þetta er að verða ein sorgarsaga með þennan dreng en Trey Canard hefur verið að berjast við erfið meiðsli meira og minna síðustu þrjú árin. Þessi frábæri og hæfileikaríki ökumaður meiddist á æfingu fyrir komandi tímabil í supercrossi og braut viðbein. Þar með er útséð að hann taki þátt í opnun á supercrossinu sem fer fram í Anaheim í Kaliforníu og þar með er ljóst að allar titilvonir hans eru þar með úr sögunni fyrir árið 2012, í það minnsta í supercrossinu.