Þó svo að við fjölskyldan vorum vant við látinn og gátum því miður ekki farið á ísinn um þessa helgi, að þá kíktum við aðeins við hjá þeim á sunnudaginn þó ekki væri nema að finna smá bensínlykt og sjá hvernig stemmingin væri í hópnum. Það er skemmst frá því að segja að að var þrusumæting á fyrstu opinberu íscross mætinguna í vetur og voru um 30 hjól á svæðinu þegar við vorum þarna. Margir voru að prófa eftir smá fjarveru frá ís og sumir að prófa í fyrsta sinn. Aron Ómarsson var að þeytta Suzuki í fyrsta sinn á ís og hafði gaman af. Jói Kef og sonur voru á staðnum að ógleymda harða genginu sem lætur sig aldrei vanta þegar ís er annars vegar. Frábært að sjá hvað margir mættu og virtust skemmta sér hið besta. Nokkur hugur er í mönnum fyrir næstu helgi og hefur verið til umræðu að mæta með Bobcat á svæðið og búa til alvöru braut, þ.e. ryðja snjóinn. Verður spennandi að sjá hvort af því verður en fyrir þá sem skæla snjóinn þar sem þá geta þeir ekki hjólað, að þá mæli ég með íscrossinu. Þó svo að það séu engir pallar eða annað slíkt, að þá er þetta frábær leið og til ná góðri bremsutækni, læra á inngjöfina við slíkar aðstæður ásamt að læra að hreyfa sig fram og aftur á hjólinu (þyngdarbreytingar). Þetta er lúmskt og tekur meira á en margan grunar. Jonni var á svæðinu og er hægt að skoða eitthvað af myndum á www.jonni.is og einnig var Binni eitthvað að flækjast fyrir og á eftir honum Ella og má sjá myndbandið frá Binna hér, en það má líka sjá á www.morgan.is. Um að gera að mæta á ísinn og hafa gaman af að hjóla þó það sé komin smá föl og það kólni pínu pons ![]()