Hér er skemmtilegt myndband sem sýnir munin á þessum þremur ökumönnum frá árinu 2005 - 2006, en þetta eru þeir Ken Roczen, Jimmy Albertsson og Jason Anderson. Ken Roczen er greinlega ekki að reyna fyrir sér í henni Ameríku í fyrsta sinn miðað við þessi myndbönd, en mynbandið fyrir neðan er frá þátttöku Ken Roczen frá Lorretta Lynn´s keppninni sem er stærsta keppni sinnar tegundir fyrir áhugamenn sem vilja reyna að komast að hjá liðum eða vekja athygli hjá styrktaraðilum. Gaman að sjá að Ken Roczen er líka mennskur og gerði sín mistök í akstri á sínum yngri árum.