Tuesday, 06 December 2011 15:47

Svona er æfingaraðstaðan hjá Justin Barcia sem er ekki ýkja hrifin af Kaliforníu

Written by 

Justin Barcia á sér marga aðdáendur þó ég sé sennilega ekki einn af þeim sem geti talist "hardcore fan".  Margir hafa hrifist af honum í akstri og hversu óvæginn hann er við andstæðinga sína.  Mér hefur oft leikið hugur um hvort að hann kæmist upp með jafn mikið í 450cc flokknum eins og hann er að gera í Lites flokknum en ég er ansi hræddur um að þegar og ef hann myndi halda áfram slíkri hegðun í 450 flokk, að þá eigi einhver eftir að pakka honum saman.  Hvað um það, en Justin Barcia er ekki mikið fyrir að hanga í Kaliforníu og vill miklu frekar æfa heima hjá sér, í sínu umhverfi.  Hér má sjá ágætis myndband um hvernig það er umhorfs í kringum hann við æfingar.  Væri ekki dónalegt að hafa sambærilegar aðstæður fyrir sjálfan sig.

 

 

Read 390 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 00:50