Vegna góðra samninga við Yamaha að þá nær Arctic Trucks bjóða nokkur Yamaha motocross- og endurohjólum árgerð 2012 á sértilboði til 28 desember. Um er að ræða verulega verðlækkun frá venjulega listaverði og ættu allir þeir sem áhuga hafa að tryggja sér hjól í tíma, áður en þau hækka aftur. Dæmi um verð eru
- Yamaha YZ85 @ 899.000 kr. (fullt verð 1.029.000 kr.)
- Yamaha YZ250F @ 1.590.000 kr. (fullt verð 1.849.000 kr.)
- Yamaha YZ450F @ 1.669.999 kr. (fullt verð 1.929.000 kr.)
- Yamaha WR450F @ 1.890.000 kr. (fullt verð 1.990.000 kr.)
Flestir sem til þekkja vita af áreiðanleika Yamaha og get ég sjálfur borið vitni um það. Nýja Yamaha YZ250F hjólið hefur verið að fá dúndrandi dóma, en hjólið er töluvert breytt frá 2011 árgerðinni og má þar nefna ný grind, stærri blöndungur og breyttur stimpill. Yamaha YZ450F hjólið þarf ekkert að kynna nema að þetta er eitt athyglisverðasta hjól sem komið hefur fram síðustu ár og virkar vegna legu mótors eins og 250F hjól á sterum. Hvað Yamaha YZ85 hjólið varðar, að þá er hjólið afar áreiðanlegt og mótorinn vinnur mjög vel á snúning eins og tvígengishjól eiga að gera. Yamaha hefur fengið bestu dóma síðustu ár fyrir "stock" fjöðrun enda er fjöðrunin frá KAYBA. Er það hlutur sem margur ökumaðurinn mætti huga meira að en bara pípum og kraftpústum. Kíkið endilega á þá í Arctic Trucks og svona til að sýna hvernig þessar græjur virka, að þá er myndband af YZ250F hjólinu og Yamaha YZ450F hjólinu hér fyrir neðan. Neðst í skjalinu er svo PDF skjal frá Arctic Trucks með staðfestum verðum.