Þessi fréttatilkynning var að berast frá Nitró.
Það er nokkuð fyrirséð að sú starfsemi sem Nítró stundar hefur orðið illa fyrir barðinu á þeim samdrætti sem orðin er í samfélaginu og ekki líklegt að það breytist á næstunni og þar af leiðandi hefur verið ákveðið að hagræða í rekstri þessarar deildar N1. Hitt er alveg skýrt að við munum áfram vera með til sölu vespur, fjórhjól og Kawasaki hjól ásamt grunn fylgivörum og veita þá þjónustu sem Nítró er þekkt fyrir, en allt heldur minna í sniðum. Af þessu tilefni verður spennandi rýmingarsala á lagervörum Nítró í desember bæði í Nítró Bíldshöfða 9 og N1 verslunum um allt land það verður því auðvelt að gera góð kaup af þessu tilefni. Rýmingar verður salan nánar auglýst í næstu viku.