Friday, 02 December 2011 15:51

Skrúfur til ísaksturs

Written by 

Margir sem hafa áhuga á að prófa íscross hafa ekki tímt að kaupa sér fullbúin íscrossdekk til að sjá hvort þeir fíli þetta eða ekki.  Klettur, sem er umboðsaðili Best Grip ísnagla býður upp á góða lausn, hvort sem þú ert áhugamaður sem vilt prófa eða einstaklingur sem stundar vetrarakstur af fullum þunga.  Þessar skrúfur eru það sem ég kalla "fullorðins" og svínvirka fyrir utan að endast mjög vel.  Fyrir utan að mikið úrval er til og misjafnar stærðir eftir því hvað hver og einn ætlar sér að nota umrædd dekk til.  Það er ekki nóg með að þessar skrúfur virka fyrir motocross- og endurohjól því einnig er hægt að setja þetta í reiðhjöl og bíla.  Ég prófaði þetta veturinn 2008 og hef ég keyrt á svona dekki meira og minna síðan og dekkið er mjög heilt og allar skrúfur ennþá á sínum stað.  Miðað við hvernig það lítur út, að þá mun það endast í 3-4 ár í viðbót.  Ég mæli með að menn kíki á þetta, því stærsti kosturinn er að hægt er að flytja skrúfurnar yfir á annað dekk þegar það er farið að gefa sig og einnig er hægt að setja í nýja skrúfu ef einhver skyldi taka upp á því að yfirgefa svæðið.  Alla vega, kíkja hjá þeim upp í Klett og mig minnir að Arctic Trucks séu að selja þetta líka fyrir Klett.  Neðst í skjalinu er viðhengi sem sýnir mismunandi stærðir.  

Read 530 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 00:51