Friday, 02 December 2011 15:09

Margir að smitast af "gulu" veikinni - Suzuki búið að tryggja sér góðan liðsauka fyrir næsta ár

Written by 

Það er greinilega mikið um að vera í herbúðum Suzuki og ljóst að þeir sitja ekki auðum höndum þessa dagana.  Í fyrstu hélt maður að þeir væru að draga lappirnar þegar maður frétti af brotthvarfi Viktors Guðbergssonar og Kjartans Gunnarssonar yfir til Kawasaki en eftir að sú frétt barst í loftið, að þá hafa hlutirnir heldur betur farið að gerast hjá Suzuki mönnum.  Ekki nóg með að þeir séu búnir að tryggja sér krafta Arons Ómarssonar, heldur hefur Jónas Stefánsson, Guðbjartur Magnússon, Ármann Ö. Sigursteinsson, Bjarki og Einar Sigurðssynir sem voru eiginlega þeir fyrstu sem riðu á vaðið og gengu frá sínum málum fyrir næsta tímabil.  Fyrir er Kristján D. Ingþórsson sem er búinn að vera gæluverkefni Jóa Kef í að verða þrjú ár.  Þannig að það er ljóst að Suzuki verður firnasterkt á næsta tímabili og er það frábært ef umboð eins og Suzuki eru að blása til sóknar og láta ekki nokkurn bilbug á sér finna.  Óska nýjum liðsmönnum Suzuki til hamingju með dílinn og Suzuki óska ég til hamingju með flotta sveit ökumanna.

Hér má svo sjá mynd af þeim Guðbjarti og Ármanni þegar þeir fengu að snerta "gulu veikina"..:0)  

Read 613 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 00:51