Já, bregðast nú krosstré sem önnur tré. Þegar maður taldi að allt væri 100% frágengið á milli Nitró með Kawasaki og Arons, að þá birtist mynd af piltinum skælbrosandi þar sem hann tilkynnir að hann sé gengin til liðs við Suzuki og að ekki sé um apríl gabb að ræða. Já, nú er óhætt að raula lagið í hvert skipti sem maður hittir Aron með viðlaginu, "they call me yellow, yellow"..:0) Ég átti stutt spjall við Aron símleiðis og hann tjáði mér að allt væri í góðu á milli hans og Nitró og að þessi ákvörðun sé tekin í fullri sátt við Nitró. Það verður forvitnilegt að sjá piltinn á Suzuki í sumar og nú er það spurningin hvernig þetta verður þar sem Viktor Guðbergsson og Kjartan Gunnarsson fóru frá Suzuki yfir í Kawasaki og nú fer Aron Ómarsson sem keppt hefur fyrir Kawaski með góðu árangri hingað til, fyrir utan eitt sumar í frí, yfir til Suzuki.