Monday, 14 November 2011 11:45

Bjarki Sigurðsson gengin til liðs við Suzuki

Written by 

Hann Bjarki Sigurðsson sem hefur verið ökumaður Honda síðan ég veit ekki hvenær hefur ákveðið að ganga til liðs við Suzuki fyrir næsta ár.  Bjarki er í dag einn af okkar bestu ökumönnum í motocrossi og enduro og er þetta mikill liðstyrkur fyrir Suzuki og jafnframt töluverður missir fyrir Honda.  Ekki náði ég að spyrja Bjarka spjörunum úr á uppskeruhátíð MSÍ um hvort hann myndi verða á 250 hjóli og halda áfram í MX2 eða hvort hann hygðist fara á 450 hjól og keppa eingöngu í MX Open á næsta ári.  Persónulega er ég nokkuð skotinn í þeirri hugmynd að strákurinn fari á 450 og sérstaklega eftir að ég sá til hans á 450 hjóli á Akureyri síðasta sumar.  Ekki fylgir sögunni hvort að Einar Sigurðsson, yngri bróðir Bjarka, sé einnig gengin til liðs við Suzuki en Einar er núverandi Íslandsmeistari í 85cc flokki og færist upp í MX Unglinga.  Mér finnst ekki ólíklegt að víst að Bjarki er orðin gulur að þá sé Einar það líka en tek það fram að ég hef ekki staðfestingu um það.  

Read 732 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 01:03