Í gær birti MSÍ lista yfir þau verðlaun sem veitt eru á uppskeruhátíðinni sem fer fram laugardaginn 12 nóvember. Við skoðun listans kemur það á óvart hversu margir liðabikarar hafa dottið út og stafar það fyrst og fremst af því að fjöldi liða í hverjum flokki fyrir sig hefur ekki náð tilætluðum lágmarksfjölda í samræmi við reglur MSÍ um keppnislið. Einungis verða veitt verðlaun í tveimur flokkum í liðakeppni, ef ég skil plaggið rétt á vef MSÍ, og er það í MX Open og MX Unglinga. Ef ég er ekki að lesa rétt í þetta skjal, að þá bið ég ykkur um að leiðrétta mig. Ljóst er við þennan lestur að liðakeppnin má muna fífil sinni fegurri. Hægt er að sjá listann með að smella hér eða vista hann, en hann er neðst með þessari frétt sem viðhengi sem hægt er að niðurhjala.
Liðakeppnin var stofnuð í kringum 2002 og hugmyndin á bakvið þau var að ýta undir skemmtanagildi og keppnisandann í sportinu. Mikið var lagt í upphafi og þótti það í raun mikils virði að vinna þennan titil, það mikið að menn kepptu að því hörðum höndum að ná þessum liðabikar. Síðustu þrjú ár hefur fjarað undan þessu hverju sem um er að kenna og nú er staðan orðin þannig að aðeins voru tveir flokkar sem uppfylltu reglur MSÍ um liðakeppni og þeir flokkar eru í motocrossinu. Sem sagt ekki verða veitt verðlaun í fjölmörgum flokkum í liðakeppni þetta árið og verður uppskeruhátíðin fátæklegri fyrir vikið að mínu mati.
Að lokum hvet ég alla til að kaupa sér miða á uppskeruhátíðina og hafa gaman af þessu. Tilvonandi Íslandsmeisturum óska ég innilega til hamingju með árangurinn í ár og efast ekki um að upplifun þeirra af kvöldinu verði góð. Ég ætla alla vega að hafa gaman af og hlakka til að sjá skemmtiatriðin að hætti "a la" Magga disco.