Chad Reed var varla komin aftur til Kaliforníu frá heimalandi sínu Ástralíu fyrr en hann var sestur niður með penna í hönd í aðalstöðvum Honda í henni Ameríku þar sem hann skrifaði undir nýjan samning við American Honda og gildir þessi samningur til næstu tveggja ára. Það þýðir að lið Chad Reed's mun vera á Hondu út árið 2013. Honda skuldbindur sig til að veita Chad Reed og liði hans TwoTwo Motosports sambærilegan tæknilegan stuðning eins og þeir veita þeirra eigin "factory" liði með þá Trey Canard og Justin Brayton innanborðs. En Chad Reed, sem stofnaði liðið fyrr rétt um ári síðan, fékk afar takmarkaðan stuðning í byrjun þegar hann stofnaði og byrjaði að keppa á eigin vegum en það breyttist þegar á leið á supercross tímabilið og í byrjun AMA Motocross tímabilsins var Chad Reed komin með fullan aðgang að herbúðum Honda. Þetta er mikill styrkur fyrir Honda og efast ég ekki um að Chad Reed eigi eftir að standa sig.