Nokkrar hræringar hafa verið í liðum í ár þó svo að lítið hafi farið fyrir því á vefmiðlum landsins sem fjalla um motocross. Ber þar helst til tíðinda að Aron Ómarsson #66 hefur ákveðið að snúa aftur til leiks með það að markmiði að endurheimta Íslandsmeistaratitilinn í motocrossi fyrir árið 2012. Eru þetta mikil tíðindi fyrir áhugamenn um motocross og á eftir að gera 2012 tímabilið skemmtilegra og litríkara. Aron Ómarsson vék frá borði eftir að hafa landað titlinum í MX1 með fullu húsi stiga árið 2010 og lagði skónna á þessa frægu hillu sem endalaust virðist taka við. En sem betur fer sá Aron ekki ástæðu til þess að láta skónna rykfalla lengi og hefur tekið þá fram að nýju. Verður æsispennandi að fylgjast með kónginum berjast við krónprinsinn, Eyþór Reynisson, sem hefur verið afar sterkur í sumar og unnið það mikla afrek að sigra MX1 á 250cc fjórgengishjóli. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert í sögu motocrossins á Íslandi. Já, þessar fréttir gera það að verkum að maður er farinn að hlakka til 2012 tímabilsins. Aron verður áfram í herbúðum Kawasaki og miðað við þá liðskipan sem er á pappírnum í dag, að þá verður það lið firnasterkt fyrir næsta ár. Má þar nefna Kjartan Gunnarsson og Viktor Guðbergsson sem hafa gengið til liðs við græna herinn.
Hvað aðra ökumenn varðar, að þá mun Sölvi B. Sveinsson færa sig upp í MX1 og keppa á 450cc hjóli á næsta tímabili. Sölvi hefur verið feyki duglegur upp á síðkastið í undirbúningi sínum og ljóst er að karlinn ætlar sér einhverja hluti á næsta ári. Sölvi verður að öllum líkindum á Hondu CRF450 fyrir næsta tímabil. Sagan á götunni hermir að tveir aðrir liðskappar séu aftur á heimleið í lið "rauðu djöflana", þ.e. munu keyra á Honda á næsta ári. Ef af því verður, að þá er ljóst að Honda liðið verður einnig mjög sterkt fyrir komandi tímabil.