Hér má sjá fyrsta myndbandið af honum James Stewart hjá hinu nýja liði, JGR Toyota Yamaha, og verður ekki annað sagt en hann virðist afar slakur með þetta allt saman. Alla á vega á viðtalinu má dæma að hann er pollrólegur yfir þessu öllu saman. Að vísu finnst mér það besta koma í endan á myndbandinu þegar það heyrist í alvöru í hjólinu og hann er að keyra á þeim hraða sem hann keyrir, þá fyrst sér maður aftur hversu góður hann er. Já, það fer eiginlega enginn eins hratt yfir vúpsa og James Stewart. Annars lítur út fyrir að JGR liðið verði feykisterkt fyrir næsta tímabil því Davi Millsaps verður áfram hjá liðinu en hann er tvímælalaust einn af þeim betri. Verður fróðlegt að fylgjast með þeim í supercrossinu og motocrossinu næsta sumar.