Saturday, 29 October 2011 22:17

Allt að gerast í Bercy Supercrossinu - Justin Barcia í drama

Written by 

Bercy supercrossið sýnt beint á Motors TV og var töluverður hasar í kvöld.  Justin Barcia lenti í útistöðum við Greg Aranda sem endaði með því að Justin Barcia komst ekki í lokakeppni kvöldins.  Lét Justin Barcia skapið hlaupa með sig í gönur þegar hann áleit að Greg Aranda hefði tekið sig út viljandi, en það sást greinilega í endursýningu að svo var ekki.  Féll Justin Barcia og tók með sér tvö aðra og þar með einn helsta keppinaut sinn Jake Weimer.  Í stað þess að halda áfram og reyna að vinna sig upp, að þá beið hann eftir því að Greg Aranda kæmi annan hring og blokkeraði Justin Barcia hann Greg Aranda og sauð upp úr.  Þurfti að halda Greg Áranda frá því að vaða í Justin Barcia og frönsku áhorfendurnir urðu snælduvitlausir.  Það var svo Kyel Cisholm sem sigraði eftir að hafa farið innan á Mike Alessi í lokakeppninni og við það fipaðist Mike Alessi og endaði á milli "bagga" og veggs og festist.  Eitt kvöld er eftir af þessari bráðskemmtilegri keppni og hægt er að horfa á það á Motors TV.  Hér er smá sýnishorn af því hvernig þetta fer fram og er þetta bráðskemmtileg keppni.

Clip SX Bercy - Vendredi

 

Read 407 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 01:04