Nú fyrir stundu var tilkynnt að í kjölfar samnings James Stewart við JGR, að JGR og Yamaha hafa endurnýjað samning sín á milli um þrjú ár, í það minnsta. Það þýðir að James Stewart muni vera á Yamaha næstu þrjú árin nema eitthvað komi upp á milli þessa tveggja aðila og það verður samningsrof þeirra af hálfu. M.ö.o. James Stewart mun ljúka ferli sínum á Yamaha hjóli. Þetta kemur mér ekkert á óvart því Toyota og Yamaha er nánast eins og samloka og vinna mjög þétt saman en JGR er í mikilli samvinnu við Toyota í NASCAR.