Þá er það orðið opinbert - James Stewart er gengin til liðs við Joe Gibbs Racing og er þetta margra ára samningur á milli þeirra. James Stewart mun keppa fyrir hönd JGR bæði í supercrossi og motocrossi næstu þrjú árin en síðan mun James Stewart fara yfir í NASCAR kappaksturinn, eins og Ricky Charmichael gerði á sínum tíma. Þetta er í það minnsta fimm ára samningur á milli James Stewart og JGR og mun liðið keppa á Yamaha út árið 2012. Er þetta afar áhugverður samningur fyrir marga sakir og greinilegt að margir motocross ökumenn hugsa sér gott til glóðarinnar þegar kemur að halda áfram í mótorsporti því nokkrir af þeim hafa nú þegar keppt í bílakappasktri og má þar nefna Ricky Charmichael, Travis Pastrana sem er margfaldur Norður-Ameríku meistari í rallý og er nú komin í Nascar. Meira að segja freestyle villingarnir eru komnir með puttana í keppnishald í bílaflokki og má þar nefna Gary Hart og Brian Deegan.
Það er frábært að James Stewart skuli snúa aftur "full time" og keppa bæði í motocrossi og supercrossi og verður nokkur eftirsjá af honum þegar hann hverfur á braut í NASCAR. Verður forvitnilegt að sjá hvernig honum gengur þegar hann fer í gegnum breytingar tímabilið, þ.e. að fara af mótorhjóli yfir á tæplega 1000 hestafla tryllitæki sem bara er hægt að beygja til vinstri..:0) Það sem hafði áhrif á þessa ákvörðun James Stewart að ganga til liðs við JGR var aðstaðan sem er víst einstök hvað þetta sport varðar ásamt þeirri staðreynd að hann fer aftur að vinna með vélvirkja sínum til margra ára, Jeremy Albrecht, en hann er nú liðsstjóri hjá JGR og stýrir öllu er kemur að keppnishaldi í motocrossi og suprcrossinu. Jeremy Albrecht var vélvirkinn þegar James Stewart vann sinn fysta AMA Motocross titill í 450 flokknum og einnig í AMA Suprcrossinu. Þannig að þeir þekkja hvorn annan mjög vel og verður áhugavert að sjá hvort að það hagnist þeim báðum vel að vera farnir að vinna aftur saman. Önnur ástæða fyrir því að James Stewart gengur til liðs við JGR er að nú þegar stýrir JGR mjög sigursælu liði í NASCAR kappakstrinum. Þannig að það er ljóst á öllu þessu að JGR hefur lagt mikið á sig til þess að fá James Stewart til liðs við sig því þeir eru að veðja á óþekktan hest hvað NASCAR ævintýrið varðar, þegar liðið getur valið úr ökumönnum.