Þær fréttir hafa farið fjöllunum hærra að KTM sé að setja á markað nýtt hjól byggt á 350cc hjóli þeirra en hjólið verður sérstaklega hannað með þarfir "freeride" ökumanna í huga. Bíða menn spenntir að sjá hvernig þetta hjól mun koma til með að verða og hvort KTM muni koma á nýju "trendi". Það sem vekur athygli mína þegar ég skoða þessa mynd, sjá að ofan, er að hjólið er með álgrind en KTM er þekkt fyrir að framleiða öll sín hjól með stálgrind þar sem álgrindinn hefur ekki sama sveigjanleika og álgrindin. Er þetta alveg nýtt á þessum bæ, þ.e. KTM. Sama hvaða álit einstaklingar kunna að hafa á hjólum frá KTM, sem því miður kemur stundum fram í hreinu hatri, að þá fara þeir ótroðnar slóðir og eru ekki að leggja árar í bát þó svo að það sé bullandi kreppa í gangi í þessum heimi eins og öðrum.