Svo virðist ekki skipta máli þó okkur sem þrífumst á bensínlykt og hávaða finnist rafmagnshjól hálf hallærisleg því æ fleiri framleiðendur er farnir að horfa á rafmagn sem aflgjafa fyrir mótorhjól og á það líka við motocrosshjól. Margir vilja meina að ströng löggjöf þeirra í Kaliforníu um útblástur, hávaða o.s.frv. sé einn af frumhvatanum sem knýr þessa þróun áfram ásamt hækkandi kostnaði við rekstur hjóla. Redshift, eða það sem við þekkjum undir merkjum BRD ef einhver skyldi kannast við það, hefur nú stigið á vagninn hvað þetta varðar og hefur nýlega sýnt mjög frambærilegt hjól, að vísu supermoto en engu að síður hjól sem sýnir þróunina sem orðið hefur í þessum bransa. Hönnunin er miklu líkari því sem við eigum að venjast í dag og er ekki jafn framúrstefnuleg eins og við höfum t.d. séð hjá Husquarna. Redshift heldur því fram að rekstur hjólsins sé allt að $2.000 USD lægri en á hefðbundnu fjórgengishjóli ef miðað er við kostnað eftir 200 tíma notkun, en þeir miða við kostnað á KTM 250SX-F hjól. Það gæti endað eftir allt saman að ég og t.d. Binni nokkur Morgan verðum að sætta okkur við að hugsanlega munum við horfa á keppni eftir um 20 ár og þá verði rafmagnsdót í gangi en ekki vel lyktandi bensíngæjur með tilheyrandi hljóði mér og öðrum til skemmtunar. Best að sýna umhverfisráðherra þetta ekki.
Það er að vísu eitt í þessu sem mér finnst alltaf gleymast í allri þessari umræðu um rafmagnshjól eða bíla, en það eru rafhlöðurnar. Já, hvað gera menn við þær þegar þær eru úr sér gengnar, þ.e. rafhlaðan/batteríð er orðið lélegt og það þarf að skipta um? Það vill nefnilega til að þessar rafhlöður innihalda þvílíkt magn eiturefna sem koma þarf fyrir í umhverfinu. Já, einhvers staðar þarf að henda þessu drasli og áhrif þess á umverfið kemur aldrei fram hjá þeim sem básúna hvað þetta er allt saman er dásamlegt. Ég man það bara eitt þegar ég vann á lyftara hjá Coke, að þessar rafhlöður og sýrurnar sem því fylgja eru hreinn og beinn viðbjóður enda ber fyrirtækjum skylda til að vera með sturtur alls staðar þar sem þær fara í hleðslu. Verður það sama upp á teningnum með bíla og hjól, þurfum við sem sagt að setja upp sturtu í bílskúrnum okkar til að geta skipt um rafhlöður í þessum tilvonandi framtíðar ökutækjum? Eða verður þetta þannig að sérverkstæði þarf að sjá um þetta fyrir okkur vegna mengunarhættu og þar með verður komið enn eitt gjaldið sem leggst á þá sem vilja eiga ökutæki með tilheyrandi verkstæðum sem spretta líklegast upp eins og gorkúlur til að byrja með. Alla vega mér finnst mörgum spurningum ósvarað þegar kemur að þessu og sjálfsagt eru þetta hlutir sem þeir sem breiða út boðskapinn vilja sem minnst komi fram í umræðunni. Það er nefnilega einfaldlega þannig að "there is always a catch" með allir nýrri tækni sem við notum, þ.e. kostir og gallar. Spurningin er og verður alltaf á endanum hvort að kostirnir séu meiri en gallarnir og ávinningur samfélagsins því betur borgið með nýrri tækni þó svo að henni fylgi löstur. Kannski verður þetta eins og svo oft áður hjá þeim sem verða ofstækisfullir, allt er réttlætanlegt þar sem tilgangurinn helgar meðalið.