Svo virðist sem fátt geti stöðvað það að James Stewart gangi til liðs við Joe Gibbs Racing eða einfaldlega JGR. En miðað við heimildir manna sem til þekkja, að þá verður formlega tilkynning þess efnis send út til fjölmiðla í byrjun næstu viku og í raun sé búið að ganga frá öllu stóru málunum sem þennan samning varðar þó svo að menn séu enn að spekúlera á hvaða tegund hann mun koma til með að vera. Þeirri spurning vilja menn meina að sé enn ósvaraða, þ.e. hvort hann verði á Yamaha eða Suzuki en það er vitað að Suzuki hefur gert töluverða atlögu að því að fá hann til liðs við Suzuki og lagt ný spil á borðið til þess að landa því dæmi. JGR er aftur á móti nýbúið að staðfesta endurnýjun á samning við Yamaha og Toyota, en þessi fyrirtæki eru samtvinnuð mjög og eins og áður hefur komið fram að þá er Yamaha undirverktaki fyrir Toyota hvað bílvélar varðar. Þannig að það er pottþétt að ef JGR fer þá leið að segja upp samning við Yamaha, að þá fylgir Toyota með í kjölfarið og þá er JGR bæði búið að missa Toyota og Muscle Milk sem fylgdi Justin Brayton to American Honda. Þannig að það þarf þá ansi mikið að gerast í millitíðinni og Suzuki þarf að koma með meira inn í dæmið en bara hjól. Fyrir mér er þetta ekki flólkið. Ef Suzuki myndi vilja leggja allt í sölurnar og í ljósi þess að þeir eru nánast búnir að leggja niður sitt "factory" lið, sem var að vísu yfirtekið af Yoshimura, að þá myndi ég einfaldlega sameina þessi lið og þá yrði Brett Metcalfe ökumaður númer tvö hjá þessu nýja sameinaða liði.