Monday, 17 October 2011 18:15

Monster Energy Cup komið á YouTube

Written by 

Þá er keppnin komin í einungis tveimur bútum á YouTube en ekki 8 talsins og er hægt að horfa á það hér.  Gæðin eru ágætt og ættu menn endilega að horfa á þetta því þetta er fín upphitun fyrir komandi supercross tímabil.  Gárungar hafa haldið því fram að sá markaðsgúrú sem fékk þá flugu í höfuðið að bjóða $1 milljón dollara í verðlaunafé mæli nú götur í Bandaríkjunum því keppnishaldara hafi mistekist að kaupa sér tryggingu fyrir keppninni eins og gert er t.d. í golfi þegar bíll er í verðalaun fyrir að fara holu í höggi.  En í slíkum tilvikum kaupa keppnishaldarar sér einfaldlega tryggingu, greiða einhverja þóknun fyrir en í fæstum tilvikum hafi reynt á trygginguna því afar sjaldan ná keppendur að fara þessa blessuðu holu í höggi og því er þetta "easy money" fyrir tryggingafélögin.  Hvað Monster Energy Cup keppnina, að þá neituðu víst hvert tryggingafélagið á fætur öðru að tryggja þessa keppni því áhættan þótti of mikil.

 

Read 272 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:46