Sunday, 16 October 2011 14:01

Ryan Villopoto er "$1 million dollar man"

Written by 

Í gær fór fram hin svokallaða Monster Ernegy Cup og á þessi keppni að vera bæði endahnykkur á AMA Motocross tímabilið og upphafið að AMA Supercrossinu.  Keppnin fór fram í Las Vegas og var keppnisfyrirkomulagið þannig að keppt var í tveimur riðlum og komust aðeins fjórir fyrstu úr hverjum riðli beint inn í úrslitinn.  Ef þú varst einn af þeim sem komst ekki inn, að þá fórstu í milliriðla og þá voru það efstu fimm sem komust áfram.  Hinir fóru í síðasta séns eða "LCQ" eins og það er kallað og þá voru það efstu fjórir sem komust inn.  Síðan þurftir þú að taka þátt í þremur umferðum og til þess að eiga möguleika á að vinna $1 milljón dollara, að þá þurftir þú að vinna allar þrjár umferðirnar.  Brautin var nokkuð sérstök og var hluti af henni meira að segja upp í áhorfendastúku og það voru nánast engar vúpsur í brautinni sem margir ökumenn eins og Josh Grant gagnrýndu á Twitter.  Það sem var skemmtilegt við þessa keppni í gær, að þú fékkst að sjá t.d. 85cc ökumenn spreyta sig í þessari keppni en mér fannast "freestyle" atriðið mjög lélegt eða réttara sagt fyrirkomulagið á því.  Þarna komu fjórir ökumenn saman og fengu eina tilraun og útkoman á því skar úr hver vann $40.000 USD.  Atrennan sem þeir höfðu til að athafna sig var engan vegin nógu góðu og hafði það áhrif á gæði stökkana.  Engu að síður að þá náði Mark Monea að klára 360° "front flip" sem er mjög erfitt og er þetta í fyrsta sinn sem þetta er klárað í keppni eins og þessari.

Hvað sjálfa keppnina varðar að þá komst enginn með tærnar þar sem Ryan Villopoto var með hælana, en drengurinn hreinlega tók alla í nefið og fann ekki fyrir því.  Yfirburðir hans voru slíkir, að ef þetta er það sem koma skal í supercrossinu að þá verður það ekki mjög spennandi.  Vonar maður innilega að hann fái meiri keppni og spennan verði ekki minni en hún var fyrir síðasta tímabil.  Ryan Dungey varð annar eftir daginn og Brett Metcalfe varð þriðji.  Sá ökumaður sem olli mestu vonbrigðum í nótt var Kevin Windham en hann hafði verið með mjög góðan æfingatíma en það gekk hreinlega ekkert upp hjá honum í gær og endaði hann í LCQ og þurfti hann meira að segja að taka ökumann niður til að komast inn og er það sjaldséð sjón hjá Kevin Windham sem þykir öllu jafna dagfarsprúður ökumaður.  Mike Alessi var dramadrottning dagsins og átti ágæta spretti en þarf að fara að hætta þessum skælum í fjölmiðla.  Josh Hansen olli líka vonbrigðum en hann meiddist í upphitun og var ekki sjón að sjá piltinn í keppninni.  Sendi hann mjög enkennilegar pílu á Mitch Payton og sagði að eina ástæðan fyrir því að hann væri með væri einfaldlega vegna þess að Mitch Payton hafði sagt honum að fara út í braut og hjóla...  Skrýtið í ljósi þess að Mitch Payton hreinlega kom þessum óstýriláta manni aftur á fjalirnar sem ökumann og væri þessi drengurinn orðin löngu gleymdur ef Mitch Payton hefði ekki gefið honum séns fyrir tveim árum síðan.  En þetta var eiginlega samt þannig að sá sem náði bestri ræsingu, sigraði og þar með var ekki eins mikið um pústra eins og ég gerði ráð fyrir og var þetta ekki eins mikið sjónarspil og ég hafði vonast til.  Engu að síður skemmtilegt keppnisform og keppnishaldarar þegar farnir að auglýsa keppnina fyrir árið 2012.  Hér eru topp 10 úrslitin og þar fyrir neðan eru svo myndbönd frá keppninni.

OVERALL RESULTS
1. Ryan Villopoto (1-1-1)
2. Ryan Dungey (3-2-2)
3. Brett Metcalfe (4-3-3)
4. Martin Davalos (7-7-5)
5. Eli Tomac (5-4-10)
6. Kyle Chisholm (9-9-7)
7. Nick Wey (14-11-4)
8. Jimmy Albertson (11-10-8)
9. Jake Weimer (12-6-11)
10. Mike Alessi (6-21-6)

 

Read 423 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 10:46