Ryan Dungey hefur ákveðið í samráði við nýja lið sitt, KTM, að taka þátt í Monster Energy Cup. Ryan Dungey lýsti því yfir í síðustu viku að hann teldi sig ekki vera tilbúinn til að taka þátt í þessari keppni þar sem þeir ættu langt í land með að gera prófanir á hjólinu. Kannski er þetta allt saman komið og kannski hafa þeir einfaldlega ákveðið að láta reyna á þetta í keppni þannig að Ryan Dungey myndi af eigin raun kynnast hvernig liðið virkar í keppni. Alla vega er það ekki óskynsamlegt fyrir ökumann sem hefur gengið í nýtt lið að taka þessa keppni og í raun finna hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og hugsanlega er þetta besta leiðinn til að undirbúa sig fyrir opnunarkeppnina þann sjötta janúar 2012 þegar AMA Supercross byrjar á Anaheim. Hér má svo sjá nýjasta myndbandið með kappanum og lítur kappinn bara þokkalega út er það ekki?