Hér er töff myndband af æfingarfélögunum Jon Jon Ames og Adam Cianciarulo sem nýlega landaði stærsta samning sem fjórtán ára gutti hefur gert á þessum aldri við Pro Circuit lið Mitch Payton. Hér spjalla strákarnir lítillega um hvaða þýðingu þetta sport hefur haft fyrir þá og í bakgrunninn má heyra móðir Jon Jon Ames sem lýsir breytingunni sem orðið hafi á honum við að byrja í þessu sporti. Þetta myndband er hrikalega flott og horfið á hraðann á þessum töppum og þá sérstaklega Jon Jon Ames í beygjunum. Já, maður getur bara látið sig dreyma..:0) Adam Cianciarulo er að fara að taka þátt í Monster Energy Cup í Las Vegas um næstu helgi en þar verður keppt í 85cc flokki.