Enn og aftur er verið að stela hjólum. Nú fyrir stuttu var þremur hjólum stolið í Hafnarfirði, nánar tiltekið í hrauninu. Um er að ræða Honda CRF250 árgerð 2010 ásamt einu GasGas PW hjóli og Suzuki RM65 að mig minnir. Hondan þekkist auðveldlega á því að hljóðkúturinn á hjólinu er krumpaður en þetta er "gamla" hjólið hans Reynis. Ef einhver hefur einhverjar upplýsingar eða rekur augun í þessi hjól að þá er sá hinn sami vinsamlegast beðin(n) um að hringja í Reynir í síma 8988419. Því miður hef ég engar myndir af þessum hjólum enn ég endurtek að Hondan er auðþekkjanleg á hljóðkútnum sem er krumpaður.