Það er greinilegt að það er kominn kreppa í þetta sport á Íslandi með öllum þeim göllum sem því fylgir. En í dag ákvað Vélhjóladeild ungmennafélagsins Þórs að aflýsa hinni svokallaðri "kreppukeppni" sem haldið hefur verið að klúbbnum síðustu þrjú ár við góðan orðstír. Ástæðan er sögð vera dræm þátttaka og dvínandi áhuga ökumanna á þessari keppni. Þannig að keppnin ber svo sannarlega nafn með rentu. Persónulega þykir mér þetta miður því þessi keppni hefur verið mjög skemmtileg áhorfs og mitt fólk alltaf sátt við að taka þátt í þessari keppni. Engu að síður skil ég sjónarmið klúbbsins mjög vel en þessi keppni hefur eiginlega orðið lokapunktur á tímabilið síðustu ár. Vonandi verður þessi keppni endurvakin í framtíðinni því það er ekkert launungarmál að ökumenn á Íslandi skortir keppnisreynslu. Það hefur sýnt sig þegar við höfum tekið þátt í mótum erlendis, að þessar fimm umferðir sem Íslandsmótið er, er einfaldlega ekki nóg og hafa klúbbar því miður ekki náð að stíga upp til að halda bikarmót.